Lífsfærniskólinn. Valfærni, varanleg velsæld og auðlegð.

Heilstætt nám í lífsfærni með Guðna. Nám í VALFÆRNI sem leiðir til varanlegrar velsældar og auðlegðar. Leiðsögn í heilan vetur. Faðmaðu lífið.

 

Ástríða eða kulnun?

Ertu draugur eða draumur?
Ertu eftirsjá og iðrun?
Eða ertu ástríða og andagift? Hvað vilt þú? Vilt þú þig? Hver ert þú?
Hver viltu vera? Hvert viltu fara? Hvað viltu gera?
Hverjir eru draumar þínir? Líka þessir stóru sem skortdýrið vill ekki leyfa þér að setja niður á blað?

Streita er hlaðin krafa um að tilvistin á þessu augnabliki sé öðruvísi. Samt höfum við varið ómældum tíma og orku í að koma okkur hingað, núna. Streita er afneitun á þeim veruleika sem við höfum sjálf raungert; hún er vanþakklæti. Kulnun er afleiðing af þessari kröfu yfir lengri tíma, endurtekin vonbrigði, vanþakklæti sem hefur rýrt alla orku og tæmt alla sjóði.
Að sjálfsögðu fylgja lífinu ótal áskoranir sem þú getur valið að upplifa sem áreiti eða tækifæri á hverjum einasta degi, en það er ekki náttúrulögmál að þau breytist í streitu, kvíða eða kulnun.
Ég vil ekki að gera lítið úr kulnun og þeirri umræðu sem nú fer fram um hana. Kulnun er raunverulegt ástand, það efast ég ekki um. En fyrir mér er kulnun ekkert annað en uppsöfnuð vonbrigði; þegar þú ert búinn að svíkja og pretta sjálfan þig og lifa í stöðugri blekkingu og væntingum um „að þegar þú gerir þetta og hitt“ sértu kominn á leiðarenda. Kulnun er gjaldþrot líkamans; þegar við höfum lifað um efni fram nógu lengi til að skapa orku og lífsþrot, andlegt, huglægt, tilfinningalegt og líkamlegt gjaldþrot.

 

 

Ásetningur næringar – Hvað þýðir það?

 

Hver er þinn ásetningur næringar?
Til hvers borðarðu? Til að byggja þig upp eða rífa þig niður? Til að kæfa eldinn í hjartanu eða örva hann?
Það þýðir að næra ásetning sinn og tilgang; að næra sig í vitund, viljandi, út frá meðvituðum forsendum. Það felur í sér að þú veltir því fyrir þér hver tilgangur þinn er með því að næra þig. Hefurðu yfirlýstan tilgang sem er ákveðinn í vitund? Læturðu steypuna renna út í loftið eða hefurðu slegið upp steypumóti eftir eigin höfði áður en þú hefst handa? Skilurðu að öll næringin sem þú innbyrðir verður að þér? Ertu að næra vansæld eða velsæld? Fjarveru eða veru?
Er næringarmynstrið þitt smámál eða stórmál?
Við innbyrðum næringu að meðaltali 5–6 sinnum á dag, 35–45 sinnum á viku, 150–180 sinnum á mánuði og 1770–2124 sinnum á ári. Þetta er besta og öflugasta tækifæri til umbreytinga sem um getur. Athöfnin að næra sig – að færa sig nær sér – er stærsta tækifærið sem við höfum til að stíga inn í núið. Hvað þurfum við að leggja á okkur mikla vinnu og margar búðarferðir til að moka í gin skortdýrsins – svo ekki sé talað um að þrífa upp eftir það?

Að efast er að veikja og aftengja, afhlaða.
Að treysta er að tengja og styrkja, hlaða.

Það getur enginn nærst eða hvílst til fulls nema með því að vera þakklátur, vilja sig og fyrirgefa sér.
Þakklæti er forsenda þess að geta þegið. Og forsenda þess að geta þegið er að hafa sleppt tökunum, látið frá sér og skapað rými – til að þiggja.

7 skrefa hugmyndafræði GlóMotion Heilræktar.

Þar er þátttakendum kennt hvernig þeir geta valið að vakna til ábyrgðar í eigin lífi og hvernig þeir geta valið eigin ásetning og tilgang. Sýnt hollustu og trúfestu, leyft sér að þroskast vegna eigin verðleika, aukið innsæi sitt, kærleika og þakklæti.

Að efast er að veikja og aftengja, afhlaða. Að treysta er að tengja og styrkja, hlaða.
Það getur enginn nærst eða hvílst til fulls nema með því að vera þakklátur, vilja sig og fyrirgefa sér. Þakklæti er forsenda þess að geta þegið. Og forsenda þess að geta þegið er að hafa sleppt tökunum, látið frá sér og skapað rými – til að þiggja.
7 skrefa hugmyndafræði GlóMotion Heilræktar. Þar er þátttakendum kennt hvernig þeir geta valið að vakna til ábyrgðar í eigin lífi og hvernig þeir geta valið eigin ásetning og tilgang. Sýnt hollustu og trúfestu, leyft sér að þroskast vegna eigin verðleika, aukið innsæi sitt, kærleika og þakklæti.

 

VakAndi með Guðna

Þú lærir íhugun (mindfulness) slökun og nærandi, eflandi, róandi öndunartækni GlóMotion heilræktar
Þetta er nærandi iðkun sem býður upp á rými þar sem þú getur leyft líkama og hug að sleppa og endurnærast.
Hér er boðið upp á ferðalag inn á við þar sem þú ferðast í vitund, athygli án afstöðu eða dóms og lærir að hugsannir og aðrar upplifannir hafa ekkert vægi nema þú veitir það.
Í djúpslökun upplifir þú meiri hvíld en í venjulegu svefni. Slökuninn endurnærir og endurnýjar frumur líkamans og losar um djúpliggjandi spennu.

Það sem þú lærir og öðlast er:

Hvað er íhugun og hvað getur hún gert fyrir þig?
Mismunandi leiðir til að stunda og vera í vitund, árverkni
Hvernig þú hámarkar umfang og gæði öndunnar
Hvernig þú getur nýtt öndunnartækni til að róa þig eða örva – tendra ljós þitt og ástríður
Hvernig þú hámarkar hvíld og gæði svefns og endurnæringar
Þeir sem eru VakAndi í vitund öndunnar ráða upplifun, tilvist
Nemendur fá leiddar upptökur og gögn til stuðnings.

Minn málflutningur er alveg laus við trúarlegar víddir – en á sama tíma kallast hann á við inntakið í öllum trúarbrögðum heimsins, sannleikann og ljós heimsins. Almættið er allt, alls staðar, og það er ekki háð neinum trúarbrögðum eða skrumskælingum. Þegar þú opnar hjarta þitt og leyfir ljósinu að streyma til þín óhindrað finnurðu fyrir þakklæti, snertingu af hálfu orku sem hefur engan áhuga á að stjórna þér eða hræða. Almættið er einfaldlega orkan og lífsaflið sem öllum er gefið og er óaðskiljanlegt okkur og öllu öðru í þessum heimi. Það er hins vegar í okkar valdi að afneita okkur og yfirgefa með því að sýna vanþakklæti; þannig rjúfum við tenginguna við almættið og getu okkar til að þiggja ljósið og kærleikann sem er alls staðar, alltaf. Mínum málflutningi, ekki síst sjónsköpunaræfingunum, er ætlað að styðja þig úr ótta yfir í traust; að þjálfa þig í að hleypa ljósinu að þér aftur og finna aftur til tengingar við risastóra og öfluga til-veru þessa heims.

Þakklæti er gáttin inn í öflugustu og fallegustu upplifun sem til er, tilfinningu sem gerir líf þitt fyllra, ánægjulegra og magnaðra á allan máta. Það er t.d. ómögulegt að vorkenna sér eða upplifa vanmátt, skort og vanþakklæti á sama tíma og maður upplifir og nýtur þakklætis/allsnægta/velsældar. Vissulega er þakklæti tilfinning og athöfn, en ekki frasi eða kurteisi. Eins og með allar athafnir er það ásetningur, vilji, framganga og þjálfun sem gerir fúskara að fagmanni og leikmann að meistara. Allt sem þarf er vilji og dagbók til að skrá í vitund allt sem þú ert þakklátur fyrir. Þú veitir þakklætinu einlæga athygli, þjálfar þig í að tengja við tilfinninguna og leyfa henni að breiðast frá hjartanu út í holdið og fylla alla þína tilvist af ljósinu, orkunni sem streymir til þín þegar hjarta þitt er opið, móttækilegt og þakklátt.

 

Hvað er lífsfærni?

 

Lífsfærni er með öðrum orðum færni í að velja líf sitt, vera valfær svo þú getur öðlast varanlega velsæld og auðlegð.

Í Lífsfærniskólanum eru þér gefin verkfæri sem Guðni Gunnarsson hefur þróað um árabil og er ætlað að leiða þig í gegnum ferli þess að uppgötva, velja, ákveða og lýsa yfir þínum tilgangi og skilgreina áform sem þú heitir sjálfum þér að fylgja. Þessi verkfæri gera þér kleift að vakna til vitundar, verða valfær og uppfylla drauma þína með því að setja þér markmið sem byggjast á tilgangi og sýn. Þessi markmið geta af sér sérstakan, mælanlegan og framkvæmanlegan árangur eftir ákveðinn tíma. Með því að nema lífsfærni, ástundarðu heilrækt sem tengir hjarta þitt við hugann til að skrá hugsanir, orð og gjörðir sem geta af sér ástríðu, eldmóð og þau tilfinningalegu áhrif sem þarf til að fylla líf þitt allsnægtum og velsæld.

Heilrækt gerir kleift að spyrja mikilvægra spurninga um þig, tilvist þína, aðstæður, viðhorf og þrár og vilja. Þessi sjálfsvinna breytir viðhorfum þínum þannig að meira rými verður fyrir einbeittara val sem byggir á því að vera í núinu, í hugsun og ígrundun. Með því að skrá lista yfir möguleika sem leiða af sér velgengni og gnægð lærirðu að finna fyrir því valdi sem felst í ákvarðanatöku. Þú færð leiðbeiningar sem beina þér framhjá óákveðni með því að læra að einbeita þér að ákvarðanatökunni og þannig færðu betur skilið hvað þarf til að ná þeirri niðurstöðu sem þú hefur valið, í vitund, að þú og samferðarmenn þínir hafið hag af. Þú lærir að einbeita þér að ferðinni en ekki áfangastaðnum, en muna samt hvert ferðinni er heitið og vilja hana – þegar þú ert þú ábyrgur, valfær skapari velgengni og allsnægta, þegar þú ert lífsfær.

VERÐSKRÁ
Staðgreitt, kr. 179.800

Raðgreitt 7 x 27,140 kr.
í allt kr. 189.980

NÁMSKEIÐ HEFST
12. september, 2023.
Takmarkaður fjöldi!

Deildu með þeim sem þér þykir vænt um
Scroll to Top