Yoga Nidra

Yoga Nidra, nýtt námskeið hefst 22. apríl, 2024.
2x í viku, alla mánudaga og miðvikudagar frá 20:00-21:15.

20,000kr.

Langar þig til þess að öðlast meiri ró og frið í huga og hjarta með aðstoð Yoga Nidra? Á þessu námskeiði lærir þú djúpslökun, ýmsar hugleiðslu aðferðir sem þú getur tileinkað þér í daglegu lífi og Pranayama öndunartækni æfingar.

Yoga Nidra eru þægilegir tímar í öruggu og þægilegu umhverfi og nærveru þar sem þú liggur mestmegnis af tímanum í Savasana hvìldarstöđu, umvafin í teppi og hlustar á rödd mína leiða þig inn í nidra ástand sem kallast öðru nafni jógískur svefn.

Ástandið á milli svefns og vöku þar sem ásetningur er sem mest móttækilegur. Þetta eru áhrifarikír og fróðleiksríkir tímar og ávinningurinn mun ekki láta á sér standa. Kennt er 2 sinnum í viku, mánudaga og miðvikudaga, í 4 vikur, 60 mínútna tímar kl. 20.00- 21.00.

ÞJÁLFARI

Jóna Lilja Guðjónsdóttir, þjálfari. rys.is

Jóna Lilja Guðjónsdóttir er með víðtæka menntun sem yoga kennari og mikla reynslu sem leiðbeinandi og þjálfari.

Jóna Lilja Lærði Heilun og Blómadropaþerapistann árið 2012 og vann sem heilari á Strandgötu 11 á meðan hún lærði. Hún er einnig hugmyndasmiður og eigandi Blómadropa Sverðliljunnar sem eru unnir með því markmiði að koma Orkustöðva kerfinu í jafnvægi.

Jóna Lilja Lauk kennararéttindum í september 2018 sem Yoga nidra kennari og hefur starfað síðan í oktober sama ár. Hún lærði hjá Matsyendra Saraswati sem tók sjálfur a.m.k 6 ára nám til þess að mastera Yoga nidra, hugleiðslu, Hatha yoga og Pranayama kennarann og er með yfir 25 ára starfs og kennarareynslu. Hann er einn af bestu kennurum sem fyrirfinnst í heiminum enda lærður af núlifandi nemenda Swami Satyananda Saraswati höfund yfir 80 bóka um andleg málefni. Kennsluréttindin fela í sér þekkingu og skilgreiningu og sögu, hefðir og þróun á yoga nidra, vísindi svefns, tauga vísindi, REM, EEG, draumakenningar, skilgreiningar á Shavasan, streitu og slökunar viðbrögð, Sankalpa(persónulegum ásetning). Koshas, Chackras (Orkustöðvar líkamans) og Tratak.

Jóna Lilja lauk einnig Pranayama öndunartækni kennara námi hjá sama kennara í maí 2019 sem felur í sér þekkingu og innsýn í Pranayama, Hatha Yoga, Shatkarmas, Mudra & Badhas, Koshas, Vayus, Nadis, Chackras og Tattwas.

Jóna hefur starfað sem Yoga nidra kennari á Yogastöð þar sem hún leiddi Námskeið og opna tíma síðan í mars 2019 undir góðum unditektum og vinsæld á stuttum tíma. Hún hefur einnig leitt djúpslökun á litlum sem stórum fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu, fyrir skjólstæðinga á Dagdeild Hrafnistu í Rvk, 5 ára Leikskólabörn, þemadaga í Framhaldsskólum og starfsfólk á vinnustöðum síðan í október 2018.

Nýlega lauk hún 40 klst námskeiði hjá indverka meistaranum og tónlistarmanninum Russil Paul. The Mastery of Mantra and other yogic Powers. Mantra, Tantra, Mudras, Shamanic powers, self healing og Shri Vidya.

Yoga Nidra, nýtt námskeið hefst 22. apríl, 2024.
2x í viku, alla mánudaga og miðvikudagar frá 20:00-21:15.

Skoða aðrar vörur!

Takk fyrir að deila!

Scroll to Top