Þessi vefsíða og vefverslun er eign
Glóandi ehf – Rope Yoga Setrið
Garðatorg 3, 210 Garðabær, IS
Sími: (+354) 535 3800
Netfang: info@rys.is
Kt. 700608-0420

Með því að nota vefverslunina rys.is samþykkir þú neðangreinda viðskiptaskilmála.

Vinsamlegast lestu þjónustu og viðskiptamála vandlega þar sem þeir innihalda upplýsingar um notkun vefsíðunnar og svör við algengum spurningum.

Ekki hika við að hafa samband við verslunina á netfangið info@rys.is ef þú hefur einhverjar spurningar.

Kaupskilmálar

Vefsíðan www.rys.is tekur einungis við pöntunum sem gerðar eru í gegnum vefverslunina, skv. þeim leiðum sem eru virkar eins og greiðslu með greiðslukorti, millifærslu á bankareikning eða netgíró.
Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupandi hefur greitt kaupverðið að fullu
Eftir að pöntun er gerð í vefverslun og staðfesting á greiðslu hefur borist sendir verslunarkerfið staðfestingarpóst til kaupanda á það netfang sem gefið er upp við skráningu. Þar með er staðfestur bindandi samningur um kaup.
Við staðfestingu pöntunar í vefverslun skuldbinda viðskiptavinir sig til þess að samþykkja notkunarskilmála hjá rys.is. Muna þarf að haka í reit því til staðfestingar í greiðsluferlinu. Ef ekki er hakað í reitinn, stöðvast greiðsluferlið sjálfvirkt. Pantanir sem berast á síðunni yfir helgi eru afgreiddar næsta virkan dag sé þess nokkur kostur.

Verð

Verð á vefsíðunni er gefið upp í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti (VSK). Allt verð í netverslun er birt með fyrirvara um fyrirvaralausar breytingar.
Vefverslunin áskilur sér rétt til að hætta að bjóða upp á ákveðnar vörutegundir fyrirvaralaust.
rys.is áskilur sér rétt til að falla frá afhendingu vörunnar ef t.d. skýr verðvilla birtist á vefsíðunni af einhverjum sökum, hvort sem um er að ræða innsláttarvillur eða galla í reiknivél verslunarinnar. Gerist slíkt munum við strax leiðrétta villur og erum við þakklát fyrir allar ábendingar viðskiptavina.

Afslættir- og kynningarkóðar

Sértakir afsláttar og kynningarkóðar eru gefnir út þegar við á og gilda þeir einungis einu sinni eða eftir ákveðnum fyrirfram fast settum reglum. Þegar kóðinn hefur verið notaður við kaup verður hann óvirkur fyrir viðkomandi kaupanda. Ekki er hægt að bæta við afslætti eftir að pöntun hefur verið staðfest. Því er mikilvægt að kaupandi fari vel yfir allar uppgefnar upplýsingar og sannfæri sig um að þær séu rétt skráðar áður en pöntunin er staðfest.
rys.is getur afturkallað afslátt, kynningarverð, kynningartilboð og afslátttarkóða hvenær sem er.

Vörur til einkanota

Allar vörur í vefverslun rys.is eru einungis ætlaðar til persónulegra nota. Það er því með öllu óheimilt að endurselja vörur af vefverslun rys.is án leyfis. Glóandi ehf áskilur sér rétt til þess að hætta við afhendingu á vörum eða stöðva pöntun ef verslunin telur að kaupandi uppfylli ekki þessa skilmála.

Greiðslumöguleikar

Netverslunin rys.is samþykkir eftirfarandi greiðslumáta fyrir pantanir á vefsíðu:
kreditkort (VISA, MasterCard)
staðgreitt með debetkorti (VISA, MasterCard)
Netgíró
Millifærslur í banka

Við greiðslu með kortum er kaupandi fluttur yfir á örugga greiðslusíðu Korta á Íslandi. Glóandi ehf er því aldrei handhafi greiðsluupplýsinga viðskiptavinar. Kaupandi fær sendan staðfestingarpóst um leið og greiðsla er staðfest frá Korta. Berist millifærslan ekki er gert ráð fyrir því að kaupandi hafi hætt við pöntun. Telji kaupandi að um galla í greiðsluferli sé að ræða ber að hafa samband við info@rys.is sem allra fyrst.

Leiðbeiningar um kaup

Vefverslunin rys.is er einföld og örugg. Hér fyrir neðan geturðu skoðað skref fyrir skref hvernig þú verslar og hverju þú getur átt von á.
1. Skoðaðu vöruna og lestu upplýsingarnar, við reynum að hafa þær sem ítarlegastar.
2. Smelltu á “setja í körfu” þegar þú hefur fundið það sem þér líkar. Um leið og aðgerðin er framkvæmd sérðu tölu í innkaupakörfunni í toppi síðunnar. Það er fjöldi þeirra vara sem eru í innkaupakörfunni þinni. Þú ert einnig flutt(ur) um leið í körfuna til að auðvelda að ljúka verslun, en getur að sjálfsögðu ákveðið að halda áfram að versla.
3. Veldu fleiri vörur og settu í körfuna eða veldu að skoða körfu til að fullvissa þig um að allar upplýsingar séu réttar. T.d. fjöldi eininga. Þú getur alltaf fjarlægt vörur með því að smella á Xið eða breytt fjölda og mundu þá að “uppfæra körfuna”. Það er einnig hér í körfunni, sem þú bætir inn afsláttarkóða ef þú hefur slíkan í fórum þínum.
4. Ef þú ert nýr viðskiptavinur þarftu að fylla út næstu skref, sem snúa að greiðsluupplýsingum og heimilisfangi. Ef þú hefur verslað áður á rys.is getur þú alltaf skráð þig inn á “Mínar síður” og nýtt upplýsingar sem fyrir eru. Ef þú hefur gleymt lykilorðinu, smelltu þá á “gleymt lykilorð”, skráðu netfangið eða notendanafn og nýtt lykilorð er sent um hæl á netfangið þitt.
5. Þú fyllir út upplýsingarnar og smellir á “áfram”. Þegar hér er komið sögu þarftu að skrá upplýsingar um greiðslukort. Þú getur notað Visa og Mastercard í vefversluninni. www.rys.is síðan sendir þig áfram yfir í örugga greiðslugátt Korta á Íslandi um leið og skrá þarf upplýsingar um greiðslukortið. rys.is er því aldrei með neinar slíkar upplýsingar, heldur tekur Korta beint við slíku og varðveitir og gengur frá greiðslunni.
6. Mundu að haka við að þú hafir samþykkt skilmálana og svo staðfesta pöntun.
7. Þegar greiðslu er lokið ættir þú að færast aftur yfir á síðuna rys.is– sýndu smá þolinmæði. Þá geturðu skoðað allar upplýsingar um pöntunina þína í “Mínar síður”. Þú færð einnig staðfestingu á pöntun senda um hæl á netfangið, sem þú hefur skráð.

Sending og afgreiðsla

www.rys.is býður uppá fría heimsendingarþjónustu á Íslandi. Viðskiptavinur getur valið að sækja vöru í Rope Yoga Sentrið í Garðabæ og skal þá geta þess í athugasemdum við kaup. Sé varan sótt í Rope Yoga Sentrið er hún tilbúin til afhendingar næsta virka dag (jafnvel samdægurs) og við afhendingu þarf að sýna staðfestingu á kaupum.
Afgreiðslutími verslunar til Pósthúss er að jafnaði næsti virki dagur. Afhendingartími Póstsins fer eftir Íslandspósti, sem sér um sendingar frá Rope Yoga Setrinu.

Skilaréttur

Áður en pöntun fer í póst (í síðasta lagi að morgni næsta dags) getur kaupandi hætt við með því að senda tölvupóst á netfangið: info@rys.is.
Skila skal vöru ásamt kvittuninni sem fylgdi pöntuninni til okkar eigi síðar en 14 dögum frá því að kaupandi fékk vöruna heim.
Tilboðsvörum fæst ekki skilað.

Skilmálar fyrir skilum

Varan skal vera í fullkomnu lagi og í upprunalegu horfi.
Varan skal vera ónotuð.
Varan skal bæði vera enn með framleiðslu-, og verðmiða.
Ef kaupandi óskar að skila vörunni, innan ofangreinds skilafrests greiðir kaupandi sjálfur sendingarkostnað til verslunar, en Glóandi ehf sendir nýja vöru, sé þess óskað, án sendingarkostnaðar. Við vöruskil dregst sendingarkostnaður frá andvirði vörunnar, hafi verslunin greitt sendingarkostnaðinn.
Einnig er hægt að skila vörum innan skilafrests í Rope Yoga Setrið, Garðatorgi 3, Garðabæ..

Útsölu- og tilboðsvörur

Ekki er hægt að skila tilboðsvörum.

Gjafir

Ef vara er merkt sem gjöf og send beint til viðkomandi sem skilar vörunni fær viðkomandi inneignarnótu að andvirði vörunnar á þeim tíma sem henni er skilað.

Gallaðar vörur

Ef kaupandi fær gallaða vöru skal senda tilkynningu með mynd gallann á netfangið: info@rys.is. Og munum við þá hafa samskipti um úrræði.
Að sjálfsögðu er einnig hægt að koma með vöruna í til okkar ganga frá skiptum eða fá inneignarnótu. Kaupanda er boðið uppá lausnir miðað við hvaða galla er um að ræða.
Um rétt kaupenda vegna galla vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Endurgreiðsla

Endurgreiðsla fer fram þegar að Glóandi ehf hefur móttekið vöruna frá kaupanda. rys.is sendir tilkynningu til kaupanda um að varan sé móttekin.
Endurgreitt er í samræmi við upprunalega greiðslu, t.d. beint inn á kort kaupanda. Endurgreiðslan berst kaupanda innan nokkurra daga, venjulega 5-10 virkra daga.
Hafi kaupandi ekki fengið endurgreitt 10 dögum eftir að staðfestingarpóstur þess efnis er sendur af stað, skal viðkomandi hafa samband við vefverslun á netfangingu info@rys.is

Vafrarakökur/cookies

www.rys.is notar vafrarakökur (cookies) til að tryggja upplifun og þjónustu við notendur. Vafrakökur eru notaðar í margvíslegum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni heimasíðunnar, vafrakökur geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar.

www.rys.is nýtir fyrst og fremst Google Analytics og Facebook Pixel til að gefa skýrslur til kerfisstjóra um notkun á vefsvæðinu, án þess að greint sé frá stökum notendum og persónuupplýsingum. Google Analytics og Facebook Pixel nota sínar eigin kökur til að fylgjast með notkun gesta á vefsvæðinu. Á grundvelli þess áskilur www.rys.is sér rétt til að birta notendum auglýsingar í gegnum endurmarkaðs setningarkerfi Google og Facebook. Upplýsingarnar eru skráðar með aðstoð og notkun á cookies.
Nánari upplýsingar um vafrakökur er að finna á www.allaboutcookies.org.

Öryggi

Öll samskipti við vefþjóna www.rys.is eru dulkóðuð og fara yfir öruggar vefslóðir (https:). Öll samskipti varðandi greiðsluupplýsingar fara fram á lokuðu vefsvæði Korta á Íslandi. Þannig er www.rys.is aldrei í snertingu við eða hefur aðgang að slíkum upplýsingum. Vefsíðan er varin með öryggiskerfi til að tryggja gögn síðunnar sem best.

Persónuupplýsingar

Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.

Öflun persónuupplýsinga

rys.is heldur til haga perónugreinanlegum upplýsingum svo sem tölvupóstfangi, nafni, heimilisfangi og símanúmeri. Upplýsingum um tölvu- og hugbúnað er sömuleiðis sjálfkrafa safnað saman af rys.is. Þessar upplýsingar geta til að mynda verið IP-tala tölvunnar þinnar, upplýsingar um tegund vafra sem þú notar, lén sem eru heimsótt, hvenær þau eru heimsótt og viðeigandi vefföng. Þessar upplýsingar notar rys.is í þeim tilgangi að veita góða þjónustu og til að afla almennra tölfræðilegra upplýsinga um notkun rys.is vefsíðunnar.
Vinsamlegast hafðu í huga að ef þú lætur af hendi perónulegar upplýsingar eða mikilvæg gögn í gegnum almenn skilaboðasvæði rys.is þá geta þessar upplýsingar verið notaðar af þriðja aðila. Ath: rys.is les ekki persónuleg samskipti sem fara fram á vefnum.
rys.is hvetur þig til að skoða hvernig meðferð persónupplýsinga er háttað hjá þeim vefsíðum sem þú kýst að krækja á rys.is. Þannig getur þú fylgst með því hvernig þær vefsíður afla, nota og deila upplýsingum þínum. rys.is er ekki ábyrgt fyrir meðferð persónuupplýsinga á þeim síðum sem ekki eru beinir aðilar að rys.is og rys.is netkerfinu né á nokkru því efni sem þar er að finna.

Notkun persónuupplýsinga

rys.is heldur til haga og notar persónuupplýsingar þínar til að starfrækja rys.is heimasíðuna og halda úti þeirri þjónustu sem þar er boðið uppá. rys.is notar einnig auðkennanlegar persónuupplýsingar til að að kynna þér aðrar vörur og þjónustu sem rys.is og samstarfsaðilar bjóða uppá. Þá gæti rys.is einnig sett sig í samband við þig til að kanna viðhorf þitt til núverandi eða tilvonandi þjónustumöguleika.

rys.is hvorki selur, leigir né gefur út viðskiptavinaskrár til þriðja aðila. Svo gæti farið að rys.is setji sig í samband við þig annað veifið fyrir hönd utanaðkomandi aðila vegna einstakra tilboða sem við teljum að gætu vakið áhuga þinn. Í slíkum tilfellum eru persónuupplýsingar (tölvupóstfang, nafn, heimilisfang, símanúmer) ekki afhentar þriðja aðila.

rys.is fylgist með því hvaða vefsíður viðskiptavinir okkar heimsækja innan rys.is-netsins til að kynna sér hvaða þjónustur sem rys.is býður uppá eru vinsælastar hverju sinni. Þessar upplýsingar eru notaðar til að senda sérsniðið efni og auglýsingar innan rys.is til viðskiptavina.

rys.is vefsíður munu þá aðeins gefa upp persónuupplýsingar þínar viðvörunarlaust að þess sé krafist af löggiltum aðilum eða í þeirri trú að slíkt sé nauðsynlegt til að verja einkaeignarétt rys.is eða tryggja persónuegt öryggi notenda eða annarra borgara. Slík afhending upplýsinga verður þó alltaf að vera í fullu samræmi við lög eða þá löglegu ferla sem rys.is einsetur sé að fara eftir.

Póstlisti

www.rys.is vinnur með tölvupóstfang í útsendingu á póstlista, sem einstaklingur hefur skráð í gagnagrunn verslunarinnar og sendir markpóst á einstaklinga á póstlista fyrirtækisins. Ávallt er hægt að afskrá sig af póstlistanum. Með skráningunni samþykkir einstaklingur að rys.is megi samkeyra upplýsingar um hann úr öðrum viðskiptakerfum fyrirtæksins, s.s. sölukerfi/póstlistakerfi og CRM-kerfi (e. Customer relationship management), til þess að geta veitt betri þjónustu og sent út einstaklingsmiðaðri skilaboð.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja að líða þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.

Garðabæ, júlí 2020

Glóandi ehf – Rope Yoga Setrið
Garðatorg 3, 210 Garðabær, IS
Sími: (+354) 535 3800
Netfang: info@rys.is
Kt. 700608-0420

Scroll to Top