Íhugun, mindfulness, slökun, netnám, slökun með Guðna Gunnarssyni. rys.is

VakAndi – hugleiðslunámskeið í núvitund og djúpslökun

Við segjum streitu, skammdegisdróma og spennu stríð á hendur. Þér býðst netnám í fjórar vikur - námskeið í hugleiðslu og öndun sem færir þér slökun, frið og áræðni. Komdu með okkur í þetta ferðalag og breyttu lífi þínu til frambúðar.

Breyttu þínu lífi á aðeins fjórum vikum!

Núvitundarnámskeið með Guðna Gunnarssyni er einstakt andlegt ferðalag.

Netnámskeið VakAndi hefst 08.11.2022 og það er til þess gert að breyta lífi þínu til frambúðar. Þú lærir að tileinka þér öndunartækni sem róar hugann, örvar ástríður og eykur árvekni. Upplifun okkar er okkar raunveruleiki og við getum lært að auka þá upplifun og gera að varanlegum lífsstíl. Þú lærir að upplifa dýpri hvíld en í venjulegum svefni. Þú öðlast andrými og hugarró og lærir að nýta verkfæri sem munu nýtast þér áfram í daglegu lífi – og það einungis á fjórum vikum.

Námskeiðið samanstendur af streymi á netinu, leiddum upptökum og hugleiðingum. Þá eru þátttakendum aðgengileg ýmis stuðningsgögn og þátttaka í lokuðum FB hóp. Leiðbeinandi er Guðni Gunnarsson.

Eftir hverju ertu að bíða?  Skráðu þig hér og byrjum ferðalagið saman.

VERÐSKRÁ
Eingreiðsla, kr. 18.900
3 x 6.900 kr. raðgreiðslur, kr. 20.700

NÁMSKEIÐ HEFST
08. nóvember, 2022

Deildu með þeim sem þér þykir vænt um
Scroll to Top