Þú getur valið að dreifa greiðslum á 4 mánuði. Þá greiðir þú í allt kr. 38.400 þ.e. 9.600 kr. á mánuði.
Ertu sífelt þreytt/ur og áhugalaus? – Máttur þakklætis kennir þér að hvílast og nærast!
Ertu að upplifa kulnun í starfi og leik? – Máttur þakklætis kennir þér að áhugi er orka og hvernig þú getur hlaðið þig og örvað!
Finnst þér lífið tilgangslaust? – Máttur þakklætis kennir þér að skilgreina tilgang og varða vegferð velsældar!
Ertu með stöðugar áhyggjur og kvíða? – Máttur þakklætis kennir þér að veita því athygli sem þú vilt í stað þess sem þú vilt ekki!
Þakklæti er uppljómun, gáttin að varanlegri velsæld
Að þiggja áhengjulaust er athöfn heilagrar veru þegar hún nærir sig; þakklæti er innstreymi sem á sér stað þegar við leyfum móðurinni, jörðinni, að hlúa að, fæða, hlaða og endurnæra afkvæmi sín. Þannig skapast fullkomin tenging við upprunann, almættið, ástina; forsendu þess að vera vakandi, rótfastur og valfær tilgangandi þiggjandi skapandi í vitund.
Námskeiðið er netnámskeið og hefst 9. janúar, 2023, með mætingu í lokaðri ZOOM síðu. Fundir eru teknir upp og aðgengilegir ásamt öðru efni námskeiðsins en því lýkur eftir níu vikur með samantekt. Þú getur hins vegar ávallt stjórnað þínu hraða og notað efnið á vefsíðu námskeiðsins. Þú hefur ótakmarkaðan og eilífan aðgang að námskeiðinu og öllum námsgögnum.
Námsgögn sem fylgja eru:
Bókin, Máttur þakklætis
Skjöl á PDF formi
Myndbönd
Hljóðskrár
Aðrar leiðbeiningar
Opið spjall einu sinni í viku í lokuðum ZOOM hóp námskeiðsins.
Daglegir áminningapóstar í níu vikur með hljóðupptökum og ábendingum um myndefni til stuðnings.
Netnámskeiðið Máttur þakklætis er fyrir alla þá sem vilja njóta varanlegrar velsældar og auka magn hamingjuhormóna í líkamanum. Það er fyrir alla sem eru tilbúnir að vera valfærir skaparar í vitund. Fyrir alla sem vilja láta af fórnarlamba eða píslarvætts hegðun. Við erum annaðhvort að skapa líf okkar viljandi í vitund eða óviljandi og það er bara þetta Ó sem aðskilur möguleika og Ó-möguleika. Að vera VakAndi og valfær er val, vald. Þakklæti er vegferð – breiðstræti velsældar.
Umsögn
Það sem 66 daga vegferðin Máttur þakklætis hefur haft djúpstæð áhrif á mig. Það hefur beint sjónum mínum að þakklætinu í öllum aðstæðum. En það hefur líka rótað upp í mér tilfinningum sem ég hef haldið í dvala lengi. Þegar ég hlustaði á hvað þessar tilfinningar vildu mér þá fann ég að ég þyrfti að taka svolítið til í mínu lífi, fækka skyldum, leyfa mér að gera minna og setja bæði mér og öðrum ný mörk. Námskeiðið var því lífsbreytandi og lífsstílsbreytandi. Ég er að æfa mig að láta af gömlum vana og leiðum siðum og kynnast nýjum miðaldra manni sem vill ekki vera fastur í viðjum vanans heldur læra, skilja og breyta.
Guðni hefur einstakt lag á að mæta manni þar sem maður er, hreyfa við manni og vekja mann til vitundar. Ég mæli með Mætti þakklætis og öllu starfi þeirra hjóna af öllu hjarta. Þau eru umbreytandi og mannbætandi í störfum sínum.
Table of Contents
Skoða aðrar vörur!
-
Máttur athyglinnar í sal. Hefst 11. apríl, 2024
13,400kr. – 48,900kr. -
Máttur Hjartans. Hefst 9. apríl, 2024
29,900kr. – 33,900kr. -
Rope yoga ástundun
24,900kr. – 60,000kr. -
Rope Yoga, grunnur. 6 vikur. Veldu 2 x eða 3 x í viku
23,900kr. – 29,900kr.