
Heilsu og ráðgjafaréttindi, lífsfærninám 2026.
Ráðgjafaréttindi – GlóMotion heilsu og lífsfærniráðgjafanám hefst 12. sept. 2026
Námið opnar dyr að djúpri og hagnýtri færni í heilsu- og lífsfærniráðgjöf, þar sem fagleg þekking og persónuleg reynsla fléttast saman. Þú kynnist helstu þáttum viðhorfs- og hegðunarbreytinga, hvatningarfræða, jákvæðrar sálfræði, næringar og næringartengdra sálfræðilegra þátta, ásamt mikilvægi hreyfingar, liðleika, svefns, streitustjórnunar og þjálfunar í núvitund og athygli.
Breyttu eigin lífi og gerðu velsæld að ævistarfi!
Veldu greiðslur:
Snemmskráning til 1. ágúst, 2026, kr. 995.000
Staðgreitt eftir 1. ágúst, 2026, kr. 1.190.000
Raðgreiðslur kr. (yfir 10 mánuði, 10 x kr. 130.900 ) í allt kr. 1.309.000
130,900kr. – 1,190,000kr.Price range: 130,900kr. through 1,190,000kr.
Að námi loknu ert þú vel í stakk búin(n) til að veita faglega og ábyrga ráðgjöf, leiða einstaklinga og hópa í átt að jákvæðum breytingum og byggja upp innihaldsríkt starf sem getur haft djúpstæð og varanleg áhrif á líf fólks.
Hvað öðlast ég með þessu námi?
Þetta nám er ekki bara menntun. Þetta er ferðalag inn á við sem breytir því hvernig þú sérð sjálfan þig, aðra og lífið sjálft. Í gegnum námið lærir þú ekki aðeins að styðja aðra til aukinnar heilsu, vellíðanar og vitundar – þú upplifir umbreytinguna sjálf(ur).Að loknu námi muntu:
- Þekkja sjálfa(n) þig betur og skilja hvernig hugsanir, tilfinningar og athygli skapa líf þitt.
- Búa yfir öflugum verkfærum til að takast á við streitu, áskoranir og breytingar af meira jafnvægi og öryggi.
- Hafa aukið sjálfstraust og meiri trú á eigin getu og innsæi.
- Geta leiðbeint öðrum í átt að meiri heilsu, vitund og lífsgæðum.
- Læra að hlusta af einlægni og skapa dýpri tengsl við fólk.
- Fá skýra sýn á styrkleika þína, tilgang og það framlag sem þú vilt færa heiminum.
- Verða hluti af einstöku samfélagi fólks sem deilir sömu sýn um innihaldsríkara líf í vitund.
- Fá verkfæri sem nýtast þér alla ævi – í fjölskyldulífi, starfi, samböndum og eigin sjálfsrækt.
- Meiri ró.
- Meiri skýrleiki.
- Meiri tilgangur.
- Meiri gleði.
- Og djúp tilfinning fyrir því að vera loksins farin(n) að lifa í samræmi við þann sem þú ert í raun og veru.
- Þetta nám er fyrir þá sem vilja ekki bara vita meira, heldur vera meira.
Skapaðu þér nýjan starfsvettvang í velsæld – hvar sem þú býrð á landinu!
Námið byggir á Sjö skrefum varanlegrar velsældar og leiðir þátttakendur í gegnum umbreytandi ferli þar sem þeir öðlast bæði dýpri skilning á sjálfum sér og hæfni til að styðja aðra til aukinnar heilsu, vellíðanar og lífsgæða.
Hver staðarlota byggir á ákveðnum skrefum ferðarinnar. Á milli staðarlota vinna þátttakendur með bækur, netkennslu, verkefni, ígrundun og verklegar æfingar sem styðja við næstu skref vegferðarinnar. Staðarloturnar eru síðan vettvangur fyrir dýpkun, reynslunám, samvinnu og samþættingu þess sem lært hefur verið.
NÁMSGÖGN
Þátttakendur fá eftirfarandi bækur og kennslugögn:
- Máttur athyglinnar
- Máttur vitundar
- Máttur viljans
- Máttur hjartans
- Máttur þakklætis
- GlóMotion CORE kennarahandbókin
SKÓLASETNING
Laugardagur 12. september 2026 Kl. 12:30–14:00
Kynning á náminu, uppbyggingu þess og ferðalaginu í gegnum Sjö skref varanlegrar velsældar.
MÁTTUR ATHYGLINNAR
Þriðjudagar frá 15. september 2026
7 vikna námskeið
Kl. 19:30–21:00
Ferðalagið hefst með athygli og valfærni. Þátttakendur læra hvernig athygli mótar upplifun þeirra af lífinu og hvernig aukin vitund um hugsanir, tilfinningar og venjur skapar grundvöll fyrir markvissari ákvarðanir og aukna valfærni.
FYRSTA STAÐARLOTA
Athygli og Valfærni
Föstudagur 2. október 2026
Kl. 19:00–21:00
Laugardagur 3. október 2026
Kl. 10:00–16:00
Sunnudagur 4. október 2026
Kl. 10:00–16:00
MÁTTUR VITUNDAR
Þriðjudagar frá 3. nóvember 2026
Kl. 19:30–21:00
Í þessum hluta er unnið með tilgang og heildbindingu. Þátttakendur skoða eigin gildi, stefnu og köllun og læra hvernig skýr tilgangur getur orðið leiðarljós í lífi og starfi. Jafnframt er unnið með heildbindingu og hæfileikann til að fylgja eigin sýn af staðfestu og ábyrgð.
ÖNNUR STAÐARLOTA
Tilgangur og Heildbinding
Laugardagur 28. nóvember 2026
Kl. 10:00–16:00
Sunnudagur 29. nóvember 2026
Kl. 10:00–16:00
Einstaklingshandleiðsla
Einn einkatími með Guðna á skrifstofu eða á netinu eftir samkomulagi.
MÁTTUR ÞAKKLÆTIS
Þriðjudagar frá 5. janúar 2027
Kl. 19:30–21:00
Í þessum hluta er unnið með framgöngu og innsæi. Þátttakendur læra hvernig þeir birtast í heiminum, leiða sjálfa sig og aðra og setja þekkingu sína í framkvæmd. Áhersla er lögð á að efla innsæi, innri leiðsögn og heilindi í samskiptum og ákvarðanatöku.
ÞRIÐJA STAÐARLOTA
Framganga og Innsæi
Laugardagur 23. janúar 2027
Kl. 10:00–16:00
Sunnudagur 24. janúar 2027
Kl. 10:00–16:00
MÁTTUR HJARTANS
Þriðjudagar frá 16. mars 2027
Kl. 19:30–21:00
MÁTTUR VILJANS
Þriðjudagar frá 13. apríl 2027
Kl. 19:30–21:00
Lokahluti námsins snýst um að samþætta öll skref ferðarinnar í eina heild. Unnið er með samhengi, þakklæti og þá dýpri sýn sem verður til þegar einstaklingurinn sér hvernig öll reynsla hans tengist.
Þakklætið styrkir tengsl við lífið, aðra og eigin vegferð. Samhliða opnast áttunda vídd námsins – örlætið. Þegar einstaklingur hefur farið í gegnum öll sjö skrefin verður örlætið eðlileg birtingarmynd innri velsældar. Þá verður hann ljómandi, glóandi og leiðandi einstaklingur sem miðlar reynslu sinni, þekkingu og visku af heilindum og örlæti.
FJÓRÐA STAÐARLOTA
Samhengi, Þakklæti og Örlæti
Laugardagur 17. apríl 2027
Kl. 10:00–16:00
Sunnudagur 18. apríl 2027
Kl. 10:00–16:00
LOKAVERKEFNI OG STARFSÞJÁLFUN
Tímabilið frá lokum síðustu staðarlotu og fram að útskrift er helgað verklegri þjálfun, handleiðslu og samþættingu alls þess sem þátttakendur hafa lært í náminu.
Sem hluta af útskriftarverkefninu framkvæmir hver þátttakandi að lágmarki 25 ráðgjafaviðtöl með skjólstæðingum, þar sem beitt er aðferðafræði, verkfærum og hugmyndafræði GlóMotion. Viðtölin eru framkvæmd undir handleiðslu og eftirfylgni og veita þátttakendum raunverulega reynslu af ráðgjöf, breytingarferlum og stuðningi við einstaklinga áður en þeir útskrifast.
Markmið verkefnisins er að:
- Efla faglega færni og sjálfstraust í ráðgjöf.
- Þjálfa virka hlustun, nærveru og markvissa eftirfylgni.
- Dýpka skilning á breytingarferlum einstaklinga.
- Tengja saman fræðilega þekkingu og raunverulega reynslu.
- Undirbúa þátttakendur fyrir starf sem GlóMotion heilsu- og lífsfærniráðgjafar.
- Á þessu tímabili umbreytist þekking í reynslu, reynsla í færni og færni í faglegt öryggi.
ÚTSKRIFT
Laugardagur 4. september 2027
Við útskrift hafa þátttakendur öðlast djúpan skilning á Sjö skrefum varanlegrar velsældar, lokið 25 ráðgjafaviðtölum undir handleiðslu og öðlast faglega hæfni til að starfa sem GlóMotion heilsu- og lífsfærniráðgjafar.
Þeir útskrifast ekki aðeins með þekkingu og verkfæri, heldur með eigin reynslu af þeirri vegferð sem þeir munu síðar leiðbeina öðrum í gegnum.
EFTIR ÚTSKRIFT
Þegar þú útskrifast sem GlóMotion-lífsráðgjafi ölast þú rétt til að reka þína eigin lífsráðgjafaþjónustu og færð aðgang að þeim verkfærum og þekkingu sem tryggja rekstur fyrirtækisins í velsæld.
Réttindin veita fullan aðgang að þekkingunni sem liggur að baki GlóMotion og RopeYoga, GlóMotion™ lógóinu, nafnspjaldi, auglýsingaefni og öðru sem skilgreint er í GlóMotion Wellness Life Coaching – réttindasamningnum.
Nánar um æfingar og heimspeki GlóMotion
GlóMotion er háþróað HeilRæktarkerfi sem sameinar líkamsþjálfun, hugrækt, núvitund, lífsspeki og næringarsálfræði til að efla velsæld og ánægju, hreyfifærni, sveigjanleika, kjarnastyrk og úthald. Í GlóMotion miðast allar æfingar við og útfrá kviðarholsvöðvunum, en þeir eru kjarni og miðja þinnar velsældar. Æfingarnar byggja á athygli, öndun, virkni og hreyfanleika sem hámarkar líkamsvitund og tryggir aðgengi og samvirkni ótal vöðva líkamans.
GlóMotion er 7 SKREFA umgjörð sem veitir þér stuðning á vegferð þinni til varanlegrar velsældar og sjálfskönnunnar. Þessi umgjörð eykur þína eigin heimild til velsældar, það er heimildin sem segir til um hversu mikið ljós þú vilt leyfa þér, hversu mikla velsæld þú vilt skapa þér, hversu stórar gjafir þú vilt þiggja og hversu vel þú getur notið lífsins sem viljandi skapari í vitund.
GlóMotion hvetur þig til að opinbera þig sem einstakling og hámarka afrakstur orku þinnar og gjafa. Þetta er gert í 7 SKREFUM sem opinbera hugsanagang þinn, kæki, vana og hefðir og tengja í þér nýjan skilning sem breytir viðhorfum þínum og allri þinni tilvist. Manneskja í vitund hefur vald til að velja velsæld, í vitund geturðu valið viðbragð út frá þinni sýn og gildum, í stað þess að bregðast við út frá forsendum ótta, efa, fortíðar og skorts.
Með því að iðka GlóMotion og tileinka þér heimspeki kerfisins færðu í hendurnar verkfæri til að starfa og leiða út frá einlægri visku hjartans, frekar en út frá tvílægum forsendum hugans. Markmiðið með iðkuninni er að styrkja stöðugt þær forsendur að innblástur og ástríða sem byggja á sönnum tilgangi sé undirstaða tilvistar okkar, frekar en hvati eða skortur sem byggir á sjálfsréttlætingu og vanmætti.
Kjarni málflutnings míns – og forsenda varanlegrar velsældar
Heiðarleiki er aðalefni og kjarni heitbindingarinnar.
Heiðarleiki og einlægni er límið sem heldur alheiminum saman. Að vera full-orðinn, heill, óskiptur og fullkominn.
Að samlagast þýðir að vera að fullu heill og sameinaður, heillandi og trúverðugur.
Þar til þú heitbindur þig hafa fyrirætlanir þínar ekki verið gróðursettar, nærðar og vökvaðar. Áform þín eru eins og fræ; þau þurfa frjósama mold og mikið vatn og sólskin.
Athygli þín er sólskinið, kærleikurinn; allt sem þú beinir einlægni ást og athygli að, vex og dafnar.
Opið hjarta laðar fram traust hjá öðrum einstaklingum. Berskjaldað hjarta er sál að skarta sínu fegursta og bjartasta ljósi.
Kennararnir
Í meira en fjörutíu ár hefur Guðni lagt sig fram við þróun heilræktar, verið brautryðjandi einkaþjálfara og lífsráðgjafa á Íslandi. Árið 1982 stofnaði hann Vaxtarræktina hf., gaf út og ritstýrði tímaritinu Líkamsrækt og næring og var leiðandi í heildrænni þjálfun hugar og líkama hjá Mátt heilsurækt. Á árunum 1990–2006 bjó hann í Los Angeles þar sem hann þróaði Rope Yoga, nýtt kerfi sem sameinar hugrækt, hreyfingu, næringu og orkuvinnu. Þegar hann flutti heim árið 2006, stofnaði hann ásamt Guðlaugu Rope Yoga Setrið og þróuðu þau það áfram í GlóMotion, sem við höfum kennt og miðlað áfram síðan 2007, bæði til einstaklinga, hópa og í kennaranámi.
GlóMotion heilsu- og lífsfærnirámskeiðið árið 2026 byggir á okkar reynslu, þekkingu og lifandi kennsluaðferðum. Námið er einstaklingsmiðað og verklegt: við lærum með líkamanum, styrkjum hugann, aukum vitund um næringu og þjálfum athygli í daglegu lífi. Við leiðium kennsluna af ástríðu og persónulegri nálgun, veitum persónulega handleiðslu og eftirfylgd, til að styrkja þig í að finna þinn innri kraft, valdhæfni og fagmennsku til að leiða aðra.
Guðlaug, stofnandi Glow Lifestyle, er fædd og uppalin á Íslandi, þar sem hún býr enn í dag. Hún varði þó stórum hluta starfsferils síns í Los Angeles í Kaliforníu, þar sem hún öðlaðist dýrmæta reynslu og ínnsýn í menningu.
Á dvöl sinni í Los Angeles kynntist hún lífsstíl sem byggir á vitund og nærveru. Þessi nálgun hafði djúp áhrif á hana og hún ákvað að byggja brú milli hugmyndafræði og glæsileika kalifornísks lífsstíls og íslenskrar menningar.
Guðlaug hefur aðallega starfað við framleiðslu á auglýsingum og myndrænu efni. Þegar hún flutti aftur til Íslands árið 2007 beindi hún orku sinni að stofnun hins þekkta veitingastaðar Gló í Engjateigi, GlóMotion heilræktar og Lífsfærniskólans. Öll þessi verkefni miða að því að skapa jafnvægi, frið og vellíðan með áherslu á ásettning næringar, hreyfingu í vitund og umhverfi fyllt kærleika og samhljómi.
Guðlaug er reynslumikill GlóMotion heilsu og lífsfærniráðgjafi ásamt því að vera sérfræðingur í orkuumsýslu. Glow Lifestyle stendur sem ávöxtur lífsverks hennar, vettvangur sem er ætlað að skapa, efla og styðja við rými og tækifæri fyrir varanlega velgsæld, flæði og ljóma – hvort sem það er á persónulegu, faglegu eða fyrirtækjatengdu sviði.
Ráðgjafaréttindi – GlóMotion heilsu og lífsfærniráðgjafanám hefst 12. sept. 2026
Námið opnar dyr að djúpri og hagnýtri færni í heilsu- og lífsfærniráðgjöf, þar sem fagleg þekking og persónuleg reynsla fléttast saman. Þú kynnist helstu þáttum viðhorfs- og hegðunarbreytinga, hvatningarfræða, jákvæðrar sálfræði, næringar og næringartengdra sálfræðilegra þátta, ásamt mikilvægi hreyfingar, liðleika, svefns, streitustjórnunar og þjálfunar í núvitund og athygli.
Breyttu eigin lífi og gerðu velsæld að ævistarfi!
Veldu greiðslur:
Snemmskráning til 1. ágúst, 2026, kr. 995.000
Staðgreitt eftir 1. ágúst, 2026, kr. 1.190.000
Raðgreiðslur kr. (yfir 10 mánuði, 10 x kr. 130.900 ) í allt kr. 1.309.000
Skoða aðrar vörur!
-
Máttur hjartans
3,990kr. -
Máttur viljans og Máttur athyglinnar
6,750kr. -
Máttur þakklætis. Hljóðbók
2,900kr. -
Máttur þakklætis.
3,690kr.Original price was: 3,690kr..2,990kr.Current price is: 2,990kr..







