fyrirlestrar með Guðna Gunnarssyni hentar stórum sem smáum viðburðum og fyrirtækjum. Taktu minninguna með. rys.is

Fyrirlestrar

Guðni Gunnarsson er einstakur fyrirlesari sem grípur athyglina og heldur henni. Hann skilar áheyrandanum einstakri upplifun og minningu.

Stórir eða smáir hópar. Nærvera, TED fyrirlestur..hvað hentar þér og þínum? Þarftu að stilla saman starfsmannastrengi? Viltu hífa andrúmsloft vinnustaðarins á annan þröskuld? Viltu hamingjusamara og afkastameira fólk í fyrirtækinu? Viltu skemmta og fræða á jákvæðanog árangursríkan hátt?
Skoðaðu nokkrar hugmyndir hér fyrir neðan og hafðu samand. Þú getur sent okkur fyrirspurn á:
Sími: (+354) 535 3800
Netfang: info@rys.is
Facebook Messenger

Ástríða eða kulnun?
Ertu draugur eða draumur? Ertu eftirsjá og iðrun? Eða ertu ástríða og andagift? Hvað vilt þú? Vilt þú þig? Hver ert þú? Hver viltu vera? Hvert viltu fara? Hvað viltu gera? Hverjir eru draumar þínir? Líka þessir stóru sem skortdýrið vill ekki leyfa þér að setja niður á blað?
Streita er hlaðin krafa um að tilvistin á þessu augnabliki sé öðruvísi. Samt höfum við varið ómældum tíma og orku í að koma okkur hingað, núna. Streita er afneitun á þeim veruleika sem við höfum sjálf raungert; hún er vanþakklæti. Kulnun er afleiðing af þessari kröfu yfir lengri tíma, endurtekin vonbrigði, vanþakklæti sem hefur rýrt alla orku og tæmt alla sjóði.
Að sjálfsögðu fylgja lífinu ótal áskoranir sem þú getur valið að upplifa sem áreiti eða tækifæri á hverjum einasta degi, en það er ekki náttúrulögmál að þau breytist í streitu, kvíða eða kulnun.
Ég vil ekki að gera lítið úr kulnun og þeirri umræðu sem nú fer fram um hana. Kulnun er raunverulegt ástand, það efast ég ekki um. En fyrir mér er kulnun ekkert annað en uppsöfnuð vonbrigði; þegar þú ert búinn að svíkja og pretta sjálfan þig og lifa í stöðugri blekkingu og væntingum um „að þegar þú gerir þetta og hitt“ sértu kominn á leiðarenda. Kulnun er gjaldþrot líkamans; þegar við höfum lifað um efni fram nógu lengi til að skapa orku og lífsþrot, andlegt, huglægt, tilfinningalegt og líkamlegt gjaldþrot.

Ásetningur næringar – Hvað þýðir það?
Hver er þinn ásetningur næringar?
Til hvers borðarðu? Til að byggja þig upp eða rífa þig niður? Til að kæfa eldinn í hjartanu eða örva hann?
Það þýðir að næra ásetning sinn og tilgang; að næra sig í vitund, viljandi, út frá meðvituðum forsendum. Það felur í sér að þú veltir því fyrir þér hver tilgangur þinn er með því að næra þig. Hefurðu yfirlýstan tilgang sem er ákveðinn í vitund? Læturðu steypuna renna út í loftið eða hefurðu slegið upp steypumóti eftir eigin höfði áður en þú hefst handa? Skilurðu að öll næringin sem þú innbyrðir verður að þér? Ertu að næra vansæld eða velsæld? Fjarveru eða veru?
Er næringarmynstrið þitt smámál eða stórmál?
Við innbyrðum næringu að meðaltali 5–6 sinnum á dag, 35–45 sinnum á viku, 150–180 sinnum á mánuði og 1770–2124 sinnum á ári. Þetta er besta og öflugasta tækifæri til umbreytinga sem um getur. Athöfnin að næra sig – að færa sig nær sér – er stærsta tækifærið sem við höfum til að stíga inn í núið. Hvað þurfum við að leggja á okkur mikla vinnu og margar búðarferðir til að moka í gin skortdýrsins – svo ekki sé talað um að þrífa upp eftir það?

Endurhleðsla og endurnýjun
Hvað hleður þig? Hvernig hleypir þú orkunni að þér?
Þetta er ein mikilvægasta spurningin sem þú getur spurt þig.
Er það hugleiðsla eða jóga?
Er það kórsöngur eða tónlist?
Er það samvera með börnunum þínum?
Er það bæn eða Faðirvorið?
Er það þegar þú ferð í sturtu að morgni og finnur heitt vatnið renna yfir líkamann í fullri vitund?
Er það þegar þú dregur djúpt andann og kjarnar þig?
Er það þegar þú faðmar aðra manneskju og leyfir hjörtum ykkar að slá í takt eitt augnablik?
Er það þegar þú sýnir örlæti og kærleika og hjálpar annarri manneskju?
Enginn getur svarað þessari spurningu nema þú. Þínir dagar, eftir þennan fyrirlestur, eiga að snúast um ákafa leit þína að eigin tengingum, ekki í huga eða efa, heldur í hjarta og sál, trausti og snertingu og fullri vitund.
Í einlægni er allt opið. Allt í þér er opið þegar þú ert einlægur og þá getur öll orka streymt til þín og frá þér, þú getur þegið og gefið í sömu andrá.
Að efast er að veikja og aftengja, afhlaða. Að treysta er að tengja og styrkja, hlaða.
Það getur enginn nærst eða hvílst til fulls nema með því að vera þakklátur, vilja sig og fyrirgefa sér. Þakklæti er forsenda þess að geta þegið. Og forsenda þess að geta þegið er að hafa sleppt tökunum, látið frá sér og skapað rými – til að þiggja.

Samskipti á vinnustað
Velgengni í rekstri fyrirtækja endurspeglar öðru fremur verðleika og heilbrigði þeirra sem þar starfa. Með því að hvetja og styðja starfsfólk okkar til að sinna eigin líkama og sál af alúð erum við því að huga að undirstöðu og framtíð fyrirtækja okkar.
Ég hef mótað fyrirlestra og námskeið þar sem er markvisst er unnið að því að veita starfsmönnum persónulega lífsráðgjöf til að efla þá í leik og starfi. Hvetja þá til reglubundinnar hug- og heilsuræktar. Heildrænt lífsmynstur, líkt og Rope Yoga byggir á hvetur starfsmenn m.a. til tómstundaiðkunar, símenntunar, heilsuræktar og hvíldar. Í þeim tilgangi að vitund þeirra um eigin verðleika sé nærð á öllum tímum.
Fyrirtæki sem með markvissum hætti gefur starfsmönnum sínum færi á að kynnast vannýttum hæfileikum og efla líkamlega og andlega getu, er í raun að skapa þeim forsendur fyrir vellíðan og jafnvægi sem allt of margir fara á mis við í samtímanum. Fyrirtæki sem nærir starfsfólk sitt og eflir, eignast ekki aðeins trausta starfmenn; það laðar einnig að sér meðvitaða og dugandi samstarfsaðila á öllum sviðum, opnar möguleika á öflugri viðskiptum og skapar óvænt tækifæri í rekstri og samskiptum.

Yfirburðir stjórnunarkerfis fyrirtækis sem sinnir starfsmönnum sínum birtast í opnari og heiðarlegri samskiptum milli manna og aukinni ábyrgðartilfinningu starfsfólks. Það hvetur starfsmenn til að vera vakandi, athugula, áhugasama og áhrifaríka. Vinnustaðurinn verður hvort tveggja í senn; skemmtilegur og skapandi.
Með því að hvetja starfsmenn okkar til að sýna sitt eðlislæga frumkvæði, þjálfa þá og efla til að taka ábyrgð á sér og frama sínum, erum við að virkja leiðtogann og skaparann í hverjum starfsmanni. Þannig fjölgum við starfsmönnum sem vilja halda tryggð við fyrirtækið. Fjarvistum fækkar og þeir njóta sín til fulls í starfi og hafa ómæld, gefandi áhrif á umhverfi sitt.

Farið er í gegnum 7 skrefa hugmyndafræði GlóMotion Heilræktar. Þar er þátttakendum kennt hvernig þeir geta valið að vakna til ábyrgðar í eigin lífi og hvernig þeir geta valið eigin ásetning og tilgang. Sýnt hollustu og trúfestu, leyft sér að þroskast vegna eigin verðleika, aukið innsæi sitt, kærleika og þakklæti.
Vakna til vitundar um hlutverk sitt sem skapandi leiðandi afl
Læra að velja viðbragð í stað þess að bregðast við; vera valfær
Ákveða tilgang, skýra áform og sýn, hafa markvissan ásetning
Verða trúverðugur, ráðvandur og verðugur
Leyfa framgang, setja markmið og leyfa sér að standa við þau
Vera vitni að eigin tilvist, ekki dómari og böðull
Þakklæti, velmegun í stað skorts eða vanþóknunnar

Máttur Athyglinnar
Allur þinn máttur snýst um aðeins tvö viðhorf: blessun eða böl? Á hverju andartaki getur þú valið hvort þú veitir athygli eða viðnám, á þessu vali byggist öll þín tilvist.

Allt sem þú veitir athygli vex og dafnar, hvort sem þú telur þig vilja það eða ekki. öll þín athygli er ljós. hamingja er að vakna til vitundar, taka ábyrgð og velja að velja hvert athyglin beinist.

Athygli er ljós og þitt ljós er þín auðlind
Öll athygli er ljós. Orkan þín er ljósgeisli. Þegar þú vaknar til vitundar geturðu ráðið því hvert þú beinir honum. Þangað til hefurðu ekkert val. Þú berð ábyrgð á því hvort geislinn skín skært og af mikilli ástríðu eða hvort hann er daufur og skín í gegnum kámugt og rispað gler.

Máttur Viljans
Ert þú viljandi í vitund eða ó-viljandi?
Valfærni er forsenda árangurs/velsældar. Allt er orka. Orka er allt sem er. Ást er eina tilfinningin – sönn uppspretta orkunnar. Allt annað er blekking. Orkan fæst með því að taka ábyrgð, verða valfær. Og ábyrgðin fæst með fyrirgefningunni. Að taka ábyrgð er forsenda þess að geta borið heilan ávöxt.
Endurheimtu vald þitt og frelsi og láttu af eftirsjá og iðrun, fóðri fórlarlambssins.
Er sjálfsmynd þín skýr? VILT ÞÚ ÞIG?
Þú getur aðeins fyrirgefið þér:
Þú getur ekki fyrirgefið öðrum og aðrir geta ekki fyrirgefið þér. Þegar þú sannarlega sleppir öðlast þú frelsi: VALD/VILJA: Valfærni

Máttur hjartans – Sjáðu fyrir þér
Ferðalag frá tvískinnungi hugans til einlægs og heillandi hjarta.
Lærðu að sjá fyrir þér og öðlast varanlega heimild fyrir velsæld – haminngju!

Máttugar eru hjartlægar manneskjur sem sjá fyrir sér viljandi!

Á þessum fyrirlestri lærir þú að leiðrétta áunnin vana, skilgreina hvað þú vilt, hvernig þú breytir viðhorfi þínu og aflar þér heimildar til að laða að þér allt sem þú vilt!

Hvað vil ég? Hver er ég? Hvert vil ég fara? Hvenær? Hvernig vil ég gera það? Á hvaða forsendum?
Við höfum allt sem við þurfum – núna – til að lifa í friði og fullkominni velsæld. Það eina sem þarf til að breyta öllu er að víkja úr vegi sjálfs þíns og hefja göngu farsældar byggða á skýrri sýn í máttugri vitund.

Máttur hjartans er kraftmikið ferðalag frá tvískinnungi til einlægni og heilinda og er ætlað þeim sem vilja VILJA sig skilyrðislaust!

Þakklæti er gáttin í velsæld
Við hlöðum okkur með því að tengja.
Með því að stinga í samband.

Þetta er hægt að gera með ótal aðferðum. Veltu þessu fyrir þér. Hvenær finnur þú til tengingar í eigin lífi?
Og hvernig skilgreinir þú orkuna í stóru samhengi? Er orkan sjálft almættið?
Er orkan uppruninn sjálfur? Er orkan kærleikurinn?

Minn málflutningur er alveg laus við trúarlegar víddir – en á sama tíma kallast hann á við inntakið í öllum trúarbrögðum heimsins, sannleikann og ljós heimsins. Almættið er allt, alls staðar, og það er ekki háð neinum trúarbrögðum eða skrumskælingum. Þegar þú opnar hjarta þitt og leyfir ljósinu að streyma til þín óhindrað finnurðu fyrir þakklæti, snertingu af hálfu orku sem hefur engan áhuga á að stjórna þér eða hræða. Almættið er einfaldlega orkan og lífsaflið sem öllum er gefið og er óaðskiljanlegt okkur og öllu öðru í þessum heimi. Það er hins vegar í okkar valdi að afneita okkur og yfirgefa með því að sýna vanþakklæti; þannig rjúfum við tenginguna við almættið og getu okkar til að þiggja ljósið og kærleikann sem er alls staðar, alltaf. Mínum málflutningi, ekki síst sjónsköpunaræf- ingunum, er ætlað að styðja þig úr ótta yfir í traust; að þjálfa þig í að hleypa ljósinu að þér aftur og finna aftur til tengingar við risastóra og öfluga til-veru þessa heims.

Þakklæti er gáttin inn í öflugustu og fallegustu upplifun sem til er, tilfinningu sem gerir líf þitt fyllra, ánægjulegra og magnaðra á allan máta. Það er t.d. ómögulegt að vorkenna sér eða upplifa vanmátt, skort og vanþakklæti á sama tíma og maður upplifir og nýtur þakklætis/allsnægta/velsældar. Vissulega er þakklæti tilfinning og athöfn, en ekki frasi eða kurteisi. Eins og með allar athafnir er það ásetningur, vilji, framganga og þjálfun sem gerir fúskara að fagmanni og leikmann að meistara. Allt sem þarf er vilji og dagbók til að skrá í vitund allt sem þú ert þakklátur fyrir. Þú veitir þakklætinu einlæga athygli, þjálfar þig í að tengja við tilfinninguna og leyfa henni að breiðast frá hjartanu út í holdið og fylla alla þína tilvist af ljósinu, orkunni sem streymir til þín þegar hjarta þitt er opið, móttækilegt og þakklátt.

Hvað er lífsráðgjöf?
Heilrækt er verkfæri sem Guðni Gunnarsson hefur þróað um árabil og því er ætlað að leiða þig í gegnum ferli þess að uppgötva, velja, ákveða og lýsa yfir þínum tilgangi og skilgreina áform sem þú heitir sjálfum þér að fylgja. Þetta verkfæri gerir þér kleift að vakna til vitundar, verða valfær og uppfylla drauma þína með því að setja þér markmið sem byggjast á tilgangi og sýn. Þessi markmið geta af sér sérstakan, mælanlegan og framkvæmanlegan árangur eftir ákveðinn tíma. Með því að ástunda heilrækt tengirðu hjarta þitt við hugann til að skrá hugsanir, orð og gjörðir sem geta af sér ástríðu, eldmóð og þau tilfinningalegu áhrif sem þarf til að fylla líf þitt allsnægtum og velsæld.

Heilrækt gerir þér kleift að spyrja mikilvægra spurninga um þig, tilvist þína, aðstæður, viðhorf og þrár og vilja. Þessi sjálfsvinna breytir viðhorfum þínum þannig að meira rými verður fyrir einbeittara val sem byggir á því að vera í núinu, í hugsun og ígrundun. Með því að skrá lista yfir möguleika sem leiða af sér velgengni og gnægð lærirðu að finna fyrir því valdi sem felst í ákvarðanatöku. Þú færð leiðbeiningar sem beina þér framhjá óákveðni með því að læra að einbeita þér að ákvarðanatökunni og þannig færðu betur skilið hvað þarf til að ná þeirri niðurstöðu sem þú hefur valið, í vitund, að þú og samferðarmenn þínir hafið hag af. Þú lærir að einbeita þér að ferðinni en ekki áfangastaðnum, en muna samt hvert ferðinni er heitið – þegar þú ert þú ábyrgur, valfær skapari velgengni og allsnægta.

Myndband úr minningabókinni 🙂

Scroll to Top